FRESTAÐ - Kynningu á embætti umboðsmanns skuldara hefur verið frestað um óákveðinn tíma

FRESTAÐ - Kynningu á embætti umboðsmanns skuldara hefur verið frestað um óákveðinn tíma

Kynning á embætti umboðsmanns skuldara

Fræðslunefnd LL stendur fyrir hádegisfræðslufundi þriðjudaginn 10. apríl en þá munu tveir sérfræðingar frá umboðsmanni skuldara kynna embættið og fara yfir stöðu mála, þróun umsóknarfjölda og tengsl embættisins við lífeyrissjóðina. Fundurinn er eingöngu ætlaður starfsmönnum og stjórnarmönnum lífeyrissjóða. Skráning á Lífeyrismál.is

Embætti umboðsmanns skuldara veitir einstaklingum endurgjaldslausa aðstoð við úrlausn á fjárhagsvanda og býður upp á almenna ráðgjöf og lögbundin úrræði sem stuðla eiga að endurskipulagningu á fjármálum einstaklinga.

Embættið hefur átt góð samskipti við lífeyrissjóði landsins en til embættisins leita meðal annars einstaklingar sem kunna að vera lífeyrisþegar, mögulegir lántakendur og skuldarar lífeyrissjóðanna. Tengsl embættisins við lífeyrissjóðina eru því margskonar og samskiptin mikilvæg.

Tveir sérfræðingar frá umboðsmanni skuldara annast kynninguna en þar verður meðal annars farið yfir stöðu mála hjá embættinu, þróun umsóknarfjölda og greiningu á þeim hópi sem til embættisins leitar. Auk þess verður farið yfir þá þjónustu og úrræði sem embættið hefur uppá að bjóða.

Kynningu hefur verið frestað um óákveðinn tíma.