Fjármálavit ungs fólks

Fjármálavit ungs fólks

Ráðstefna um fjármálavit ungs fólks verður haldin 18. janúar kl. 15.00 - 16.30, Hús Vigdísar, Veröld við Brynjólfsgötu 

Samtök fjármálafyrirtækja standa að ráðstefnunni þar sem meðal annars verða kynntar niðurstöður könnunar Gallup á fjármálaviti Íslendinga samanborið við önnur Evrópuríki og farið yfir stöðu fjármálalæsiskennslu ungmenna hér á landi. Skráning er hér.
 

Dagskrá:  
Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.
Ávarp: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra. 

Erindi:
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri.
Friðrik Björnsson, markaðsstjóri Gallup, segir frá fjármálalæsi á Íslandi í evrópskum samanburði.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri Lýðheilsusviðs hjá embætti landlæknis, fjallar um tengsl fjármála og hamingju.
Auður Bára Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Menntamálastofnun, heldur erindi undir yfirskriftinni: Aðalnámskrá grunnskóla, rammi náms og kennslu. Hvar rúmast fjármálafræðslan?

 

Pallborðsumræður:
Ásta S. Helgadóttir, umboðsmaður skuldara.
Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla.
Tinna Ösp Arnardóttir, viðskipta- og hagfræðigreinakennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.
Jón Jósep Snæbjörnsson, viðskiptatengslastjóri Aurbjargar.
Alma Björk Ástþórsdóttir, sérfræðingur í fjármálalæsi og varaformaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra.
Þórey Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, stýrir umræðum.