Landssamtökin eru heildarsamtök lífeyrissjóða sem hlotið hafa starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða eða starfa samkvæmt sérlögum um lífeyrissjóði. Landssamtökin hafa innan vébanda sinna 17 lífeyrissjóði.
Stærstu lífeyrissjóðir í Landssamtökum lífeyrissjóða miðað við hlutfall skiptingar heildareigna eru: Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi-lífeyrissjóður, Birta lífeyrissjóður, Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Almenni - Lífsverk lífeyrissjóðurinn.
Á vegum LL starfa fimm fastanefndir, Nefnd um fjárfestingarumhverfi lífeyrissjóða, Réttindanefnd, Samskiptanefnd, Fræðslunefnd, Áhættunefnd. Enn fremur er að störfum Úrskurðar- og umsagnarnefnd. Mikið starf er unnið innan og á vegum fastanefndanna en á vegum þeirra eru einnig nokkrir undirhópar starfandi um einstök tímabundin verkefni.