Mánaðarpóstur, desember 2013

Fréttir

Bestu jóla og nýárskveðjur frá landssamtökum lífeyrissjóðajólabjalla

Stjórn og starfsmenn Landssamtaka lífeyrissjóða óska þér og þínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, með ósk um áframhaldandi gott samstarf.

Tillögur í skuldamálum og áhrif á viðbótarlífeyrissparnað

Stjórnvöld kynntu fyrir skemmstu fyrirhugaðar aðgerðir í skuldamálum heimila sem varða viðbótarlífeyrissparnað. Aðgerðirnar eiga að koma til framkvæmda 1. júlí 2014. Samkvæmt þeim verður rétthöfum viðbótarlífeyrissparnaðar gert heimilt að ráðstafa allt að 4% iðgjaldi sínu og 2% mótframlagi launagreiðanda inn á húsnæðislán. Sjá nánar 

Lífeyrisgáttin

Frá því vefurinn www.lifeyrisgatt.is var kynntur 29. október sl. hafa um eitt þúsund einstaklingar heimsótt vefinn. Umferð í Lífeyrisgáttina frá vefjum lífeyrissjóðanna hefur einnig verið talsverð eins og sjá má af því að á vefjum þriggja stærstu lífeyrissjóðanna hafa hátt í 3000 sjóðfélagar skoðað þjónustuna beint.
Sérstakur vinnuhópur á vegum LL mun vinna að áframhaldandi þróun Lífeyrisgáttarinnar og undirbúa næstu útgáfu.  Allar ábendingar um lagfæringar og viðbætur við Lífeyrisgáttina eru vel þegnar og óskast sendar á ll@ll.is merkt ,,Lífeyrisgáttin tillögur".

Frjálsi valinn besti lífeyrissjóður smáþjóða

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn besti lífeyrissjóður smáþjóða af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE). Sjá nánar 

Handbók stjórnarmanna endurútgefin

KPMG hefur gefið út nýja útgáfu af Handbók stjórnarmanna. Sjá nánar 

Af vettvangi LL

Lífeyrissjóðir og nýsköpun

Þann 3. desember sl. var á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins boðað til fundar um málefnið ,,Er þörf á nýsköpun í fjárfestingum lífeyrissjóðanna?" Sjá nánar 

Lífeyrissjóðir og íslenskt atvinnulíf

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Landssamtök lífeyrissjóða og Alþýðusamband Íslands stóðu fyrir morgunverðarfundi 15. nóvember sl. um stöðu lífeyrissjóða í íslensku atvinnulífi, hluthafastefnu þeirra, mikilvægi góðra stjórnarhátta og virkrar samkeppni. Sjá nánar 

Á döfinni

Fjölþjóðleg ráðstefna um lífeyrismál í Reykjavík

Ráðstefna um lífeyrismál verður haldin á vegum FME og OECD  í Reykjavík 28. febrúar 2014. Nánar auglýst síðar.

Greinar um lífeyrismál

Skattfrjáls ráðstöfun viðbótarsparnaðar

Grein eftir Ólaf Pál Gunnarsson, framkvæmdastjóra Íslenska lífeyrissjóðsins, birt í Fréttablaðinu 14. desember 2013.
Sjá nánar 

Að greiða séreignarsparnað inn á lán

Grein eftir Gunnar Baldvinsson, formann stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða og framkvæmdastjóra Almenna lífeyrissjóðsins, í Mbl. 7. desember 2013.
Sjá nánar 

Hækkandi lífaldur- auknar skuldbindingar lífeyris-sjóðanna

Grein eftir Björn Z. Ásgrímsson, sérfræðing á greiningasviði FME, í vefritinu Fjármál, nóvember 2013.
Sjá nánar 

Fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða

Grein eftir Arnar Jón Sigurgeirsson, sérfræðing á eftirlitssviði FME, í vefritinu Fjármál, nóvember 2013.
Sjá nánar