Hæfismat FME og Tryggingafræðilegt mat

Vekjum athygli á námskeiðum á vegum Félagsmálaskóla alþýðu á næstu vikum.

Tryggingafræðilegt mat lífeyrissjóða 

Verður þriðjudaginn17. maí og er eingöngu í fjarnámi. 

Um er að ræða hagnýtt námskeið um tryggingafræðilegar athuganir sem lífeyrissjóðum ber að framkvæma árlega á starfsemi sjóðsins og segir til um getu til að standa undir skuldbindinum.

Bjarni Guðmundsson, tryggingastærðfræðingur

Námskeiðsgjald er:  34.000 kr. 

Hæfismat FME

Undirbúningsnámskeið fyrir stjórnarmenn lífeyrissjóða sem fram fer í tveimur hlutum að þessu sinni. Námskeiðið er eingöngu kennt í staðnámi í Guðrúnartúni 1. 
Lögð er áhersla á að undirbúa stjórnarmenn í lífeyrissjóðum undir þá þætti í starfsemi lífeyrissjóðanna sem FME hefur tekið mið af í mati sínu. 

Fimmtudaginn 19. maí kl. 9:00 - 16:00
Fjárfestingarstefna, áhættumat, hlutverk og helstu verkefni stjórnarmanna í lífeyrissjóðum.
Tómas N. Möller lögfræðingur hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.

Fimmtudagur 2. júní kl. 9:00-12:00
Hlutverk stjórnarmanna og starfsemi lífeyrissjóða.
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri LL.

12:30-16:00
Sjálfstæði, dómgreind og viðhorf.
Kristján Geir Pétursson, lögfræðingur hjá Birtu.

Föstudagur 3. júní kl. 9:00 - 16:00 og laugardagur 4. júní kl. 9:00 - 12:00
Reikningsskil og endurskoðun lífeyrissjóða
Vignir Rafn Gíslason, löggiltur endurskoðandi og partner hjá PWC og Jón Sigurðsson, löggiltur endurskoðandi og partner hjá PWC.

Námskeiðsgjald er: 190.000 kr.