Fjármálalæsi í PISA könnun 2021

Fjármálalæsi í PISA könnun 2021

Sofnun um fjármálalæsi, Neytendasamtökin, Heimili og skóli, Samtök fjármálafyrirtækja, Umboðsmaður skuldara og Landssamtök lífeyrissjóða sendu menntamálaráðherra fyrr í vikunni áskorun þess efnis að Ísland taki þátt í PISA könnuninni árið 2021. Um er að ræða valkvæðan hluta könnunarinnar en tilgangur hans er að meta hæfni nemenda til að beita fjármálalegri þekkingu sinni og leikni í raunverulegum aðstæðum, þ.m.t. að taka fjármálalegar ákvarðanir.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur nú ákveðið að Ísland taki þátt sem er mikið fagnaðarefni fyrir okkur sem að þessu stöndum.

Fréttatilkynning mennta- og menningarmálaráðuneytis

Áskorun Stofnunar um fjármálalæsi, Neytendasamtakanna, Heimilis og skóli, Samtaka fjármálafyrirtækja, Umboðsmanns skuldara og Landssamtaka lífeyrissjóða

Heimasíða Fjármálavits

LL eru aðilar að Fjármálaviti. Starfsfólk sjóðanna er iðið við að heimsækja krakkana í skólunum og fræða þau um fjármál og vekja athygli á lífeyrismálum. Þessar myndir eru frá undirbúningsnámskeiði sl. haust þegar starfsfólkið setti sig í spor krakkanna og leysti þau verkefni sem krakkarnir fá að spreyta sig á í vetur.