Aðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða 2019

Aðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða 2019

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, öðru sinni

Á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða 2019 sem haldinn var í Hörpu 28. maí tók Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, við formennsku samtakanna annað árið í röð. Gylfi Jónasson, framkvæmdastjóri Festu lífeyrissjóðs, er varaformaður.

Þrír stjórnarmenn voru endurkjörnir í  níu manna stjórn samtakanna: Guðrún Hafsteinsdóttir, Lífeyrissjóði verzlunarmanna, Haukur Hafsteinsson, LSR og Ingibjörg Ólafsdóttir, Gildi - lífeyrissjóði.

Aðrir stjórnarmenn eru Arnaldur Loftsson, Erla Jónsdóttir, Gylfi Jónasson, Halldóra Káradóttir, Valmundur Valmundsson og Jakob Tryggvason.

Í varastjórn var endurkjörin Hulda Rós Rúriksdóttir, Almenna lífeyrissjóðnum. Aðrir í varastjórn eru Erla Ósk Ásgeirsdóttir, Íslenska lífeyrissjóðnum og Sigurbjörn Sigurbjörnsson, SL lífeyrissjóði.

Aðalfundarstörfin voru annars hefðbundin.

Í ávarpi stjórnarformanns kom fram að það hefði breytt miklu fyrir starfsemi lífeyrissjóða að fjármagnshöftum var aflétt á árinu 2017. Umsvif á íslenskum verðbréfamarkaði hefðu vissulega verið minni en ella á árinu 2018 vegna þess hve mikið fjármagn var flutt úr landi í kjölfar afnáms hafta en það væri verið eðlilegt í sjálfu sér og ekkert sem kæmi á óvart.

Núna í mars 2019 hefði svo innflutningshöftum fjármagns verið aflétt að fullu. Það hefði sömuleiðis sín áhrif og kynni að leiða til meiri umsvifa í Kauphöllinni en sé fyrst og fremst til marks um áhuga erlendra fjárfesta á möguleikum á Íslandi og stuðningsyfirlýsing við íslenskt fjármálakerfi og íslenskt samfélag.

Á aðalfundinum var meðal annars samþykkt nýtt lógó fyrir landssamtökin. Sjá frétt um nýtt lógó

 Starfsskýrsla Landssamtaka lífeyrissjóða 2018-2019

Glærur frá ársfundi 2019