Aukaaðalfundur LL, 20. ágúst 2018

Aukaaðalfundur LL, 20. ágúst 2018

Aukaaðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða 20. ágúst 2018

Stjórn LL hefur ákveðið að boða til aukaaðalfundar mánudaginn 20. ágúst 2018, kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn hjá LL, Guðrúnartúni 1, 2. hæð, fundarherbergi 1. Fundarboð hafa verið send á aðildarsjóðina en samkvæmt gildandi samþykktum LL eiga rétt til setu á aðalfundi með málfrelsi og tillögurétt stjórn, framkvæmdastjórar og lykilstarfsmenn aðildarsjóða auk starfsmanna LL. Á dagskrá fundarins verður kjör eins stjórnarmanns til eins árs.