Raunávöxtun lífeyrissjóða jákvæð á liðnu ári

Raunávöxtun lífeyrissjóða jákvæð á liðnu ári

Undanfarið ár einkenndist af sveiflum, bæði á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum ásamt hárri innlendri verðbólgu. Samkvæmt áætlun Landssamtaka lífeyrissjóða var raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða jákvæð um hálft prósent að meðaltali sem svarar til um 8,5% nafnávöxtunar, en verðbólga ársins var um 8%. Áætlunin tekur mið af vegnu meðaltali alls eignasafns íslenskra lífeyrissjóða árið 2023 en endanlegar ávöxtunartölur verða birtar þegar ársreikningar sjóðanna fyrir árið 2023 liggja fyrir.

Langtímaávöxtun umfram viðmið

Lífeyrissjóðir horfa til langtímaávöxtunar við fjárfestingar enda eru skuldbindingar þeirra til langs tíma. Árangur við ávöxtun til langs tíma skiptir því meginmáli. Síðustu 10 ár hefur meðalraunávöxtun sjóðanna verið um 4,1% og 5 ára um 3,8% sem er umfram 3,5% ávöxtunarviðmið skuldbindinga sjóðanna. 

Raunávöxtun lífeyrissjóða á Lífeyrismál.is

Á vefnum Lífeyrismál.is undir Tölur og gögn má finna fjölbreyttar upplýsingar um íslenska lífeyrissjóðakerfið og samanburð við önnur lönd.