Sl lífeyrissjóður fyrstur til að fá vottun

Sl lífeyrissjóður fyrstur til að fá vottun

Sl lífeyrissjóður fyrstur til að fá vottun

Starfsemi SL lífeyrissjóðs hefur nú verið vottuð samkvæmt staðlinum ISO 27001 sem er staðall er snýr fyrst og fremst að upplýsingatækni og staðlinum ISO 9001 sem er staðall er snýr að vottun gæðakerfa eða rekstrarhandbók. 

Eftir því sem best er vitað er SL lífeyrissjóður fyrsti íslenski lífeyrissjóðurinn sem hlýtur slíka vottun á starfsemi sinni.   Vottunin byggir á margra ára uppbyggingu innra verklags sjóðsins og rekstrarhandbókar. 

Eignir SL lífeyrissjóðs nema nú um 164 milljörðum króna og eru sjóðfélagar um 140 þúsund.  Sjóðurinn er 9. stærsti lífeyrissjóður landsins.