Birta lífeyrissjóður stofnaður

Sjóðfélagar Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs samþykktu einróma að sameinast á aukaársfundum síðdegis og í kjölfarið var boðað til stofnfundar nýs lífeyrissjóðs sem fékk nafnið Birta lífeyrissjóður. 

Þorbjörn Guðmundsson, formaður Sameinaða lífeyrissjóðsins, verður fyrsti formaður stjórnar Birtu og Anna Guðný Aradóttir, formaður Stafa lífeyrissjóðs, varaformaður Birtu.

Áberandi mikil ánægja og stemning ríkti á aukaársfundunum og síðar á stofnfundinum. Bjart er því yfir Birtu frá fyrstu stundu.

„Við erum hér að upplifa stóra sameiningu í lífeyrissjóðakerfinu, þetta er stór stund, mikilvæg og ánægjuleg,“ sagði Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, sem hlaut þann heiður að stýra stofnfundi Birtu lífeyrissjóðs.

Í tilkynningu frá Birtu lífeyrissjóði kemur eftirfarandi fram:

Það telst til tíðinda að svo stórir lífeyrissjóðir sameinist og sameinaðir verða þeir fjórði stærsti lífeyrissjóður landsmanna með yfir 18.000 virka sjóðfélaga og hreina eign upp á um 310 milljarða króna, sem er um tíundi hluti heildareigna allra lífeyrissjóða landsins.

Tíu manna stjórn Birtu var kynnt á stofnfundinum. Meðal fyrstu verkefna hennar er að ráða framkvæmdastjóra nýja lífeyrissjóðsins, finna sjóðnum húsnæði til framtíðar og undirbúa fyrstu skrefin að öðru leyti.

Stjórnin er þannig skipuð:

  • Anna Guðný Aradóttir, Davíð Hafsteinsson, Guðrún Jónsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir og Jón Bjarni Gunnarsson af hálfu atvinnurekenda.
  • Gylfi Ingvarsson, Jakob Tryggvason, Unnur María Rafnsdóttir, Viðar Örn Traustason og Þorbjörn Guðmundsson af hálfu launafólks.

Stefnt er að því að starfsemi í nafni Birtu lífeyrissjóðs hefjist fyrir lok ársins, undir sama þaki.

Í baklandi lífeyrissjóðanna (samtökum atvinnurekenda og launafólks) er yfirlýst stefna að hagræða enn frekar í lífeyriskerfinu með því að fækka sjóðum og stækka þá og styrkja með sameiningum. Það þarf til að mynda stóra og öfluga sjóði til að standa undir sífellt meiri kröfum til sérhæfingar af ýmsu tagi.

  • Viðræður um sameiningu Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa hófust í byrjun maí 2016. Þær hafa gengið vel og engar umtalsverðar hindranir orðið í vegi viðræðunefndanna, enda er uppbygging sjóðanna svipuð og bakland þeirra sömuleiðis.
  • Gert er ráð fyrir að sameiningin miðist við stöðu sjóðanna í byrjun árs 2016 en að ávinnsla réttinda í nýja sjóðnum hefjist 1. janúar 2017.
  • Við ársuppgjör 2015 kom í ljós að meðalávöxtun beggja sjóða síðastliðin fimm ár var nákvæmlega sú sama eða 6%. Ávöxtun eigna fyrstu sex mánuði ársins 2016 var nánast sú sama líka, þar munaði 0,1%!

Sameinaði lífeyrissjóðurinn varð til í ársbyrjun 1992 með sameiningu Lífeyrissjóðs byggingarmanna og Lífeyrissjóðs málm- og skipasmiða. Síðar bættust við lífeyrissjóðir bókagerðarmanna, garðyrkjumanna, múrara, verkstjóra og fleiri.

Stafir lífeyrissjóður varð til við samruna Samvinnulífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðsins Lífiðnar í ársbyrjun 2007. Til Stafa greiða starfsmenn fyrirtækja sem áður tilheyrðu Sambandi íslenskra samvinnufélaga og félagsmenn í Rafiðnaðarsambandi Íslands og Matvæla- og veitingafélagi Íslands.