Íslenska lífeyriskerfið er áfram í fremstu röð á heimsvísu samkvæmt alþjóðlegri lífeyrisvísitölu Mercer og CFA Institute fyrir árið 2026. Ísland er í þriðja sæti vísitölunnar af 55 ríkjum sem tekin voru til skoðunar og er meðal þeirra ríkja sem hljóta hæstu mögulegu einkunn.
Aðeins Holland og Danmörk eru ofar á listanum en Ísland hlaut, líkt og í fyrra, A-einkunn. Samkvæmt skilgreiningu Mercer endurspeglar A-einkunn lífeyriskerfi sem veitir góð lífeyrisréttindi, býr yfir sterkri sjálfbærni og nýtur trausts meðal sjóðfélaga.
Lífeyrisvísitalan metur lífeyriskerfi út frá þremur lykilþáttum: nægjanleika lífeyrisréttinda, sjálfbærni kerfisins til lengri tíma og trausti til þess. Ísland hlaut A-einkunn í öllum þessum flokkum, sem undirstrikar styrk og stöðugleika íslenska lífeyriskerfisins.

Heildareinkunn Íslands var 84,0 stig, óbreytt frá fyrra ári. Danmörk fór hins vegar úr 82,3 stigum í 84,1 stig og fór þannig naumlega fram úr Íslandi. Samkvæmt Mercer má rekja þá hækkun fyrst og fremst til nýrra spurninga og breytts vægis einstakra þátta í undirvísitölunni sem mælir heilindi og stjórnarhætti. Þessi breyting skýrir sætaskipti Danmerkur og Íslands fremur en að breytingar hafi orðið á undirliggjandi styrkleikum lífeyriskerfanna sjálfra.
Niðurstöðurnar staðfesta enn á ný sterka stöðu íslenska lífeyriskerfisins í alþjóðlegum samanburði og getu þess til að veita sjóðfélögum trygg réttindi til framtíðar.
Lífeyrisvísitala Mercer byggir á gögnum frá OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum alþjóðastofnunum auk upplýsinga sem sérfræðingar afla í hverju landi. Vísitalan er ein sú virtasta á sínu sviði og veitir mikilvæga innsýn í stöðu, sjálfbærni og framtíðarþol lífeyriskerfa um allan heim.