Fyrirlestur um grunnlífeyri og umbætur á sænska lífeyriskerfinu

PRICE (Rannsóknarstofnun um lífeyrismál) stendur fyrir fyrirlestri 23. október nk. um grunnlífeyri og umbætur á sænska lífeyriskerfinu. Í þessum fyrirlestri mun Johannes Hagen, dósent í hagfræði við Jönköping International Business School, kynna nýlegar tillögur um umbætur á grunnvernd sænska lífeyriskerfisins og fjalla um þá vinnu sem nú stendur yfir. Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands kl. 12-13:30.

Sjá nánar hér.