Gildi og Lífeyrissjóður Vestfirðinga renna saman

Unnið er að sameiningu Gildis-lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga. Á aukaársfundi Gildis-lífeyrissjóðs 3. desember s.l. var samrunasamningur Gildis og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga lagður fram til afgreiðslu og samþykktur samhljóða.  Einnig voru samþykktar tillögur til breytinga á samþykktum Gildis.

Samrunasamningurinn verður lagður fyrir aukaársfund Lífeyrissjóðs Vestfirðinga 9. desember n.k.

Gögn:

Gildi og Lsj. Vestfirðinga – Vigfús Ásgeirsson tryggingafræðingur.
Samrunasamningur og tillögur til breytinga á samþykktum Gildis.