Leyfi lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis

Landssamtök lífeyrissjóða hafa átt í viðræðum við Seðlabankann um að lífeyrissjóðum verði veitt leyfi fyrir einhverjum fjárfestingum erlendis. Slík heimild væri til þess fallin að koma til móts við sjónarmið um nauðsynlega áhættudreifingu og draga úr hugsanlegum neikvæðum áhrifum sem geta fylgt því að lífeyrissjóðir fjárfesti eingöngu innanlands. Undanþága væri einnig til þess fallin að draga úr uppsafnaðri erlendri fjárfestingarþörf lífeyrissjóða þegar kemur að losun hafta. Seðlabankinn hefur sýnt málinu skilning og tekið vel í þetta og eru nú taldar miklar líkur á að heimild verði veitt fyrir slíkri fjárfestingu seinni hluta þessa árs.