Lífeyrissjóðum veitt heimild til erlendra fjárfestinga

Seðlabanki Íslands hefur tilkynnt ákvörðun sína um að veita lífeyrissjóðum og öðrum innlendum vörsluaðilum séreignarlífeyrissparnaðar undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál til fjárfestingar í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri. Heimildin nemur samanlagt 10 ma.kr. og gildir til loka júní.

Sjá nánar frétt á heimasíðu SÍ.