Lífeyrissjóðum veitt heimild til fjárfestinga erlendis

Seðlabanki Íslands hefur gefið út þá yfirlýsingu að lífeyrissjóðum verði gert heimilt að fjárfesta erlendis fyrir samanlagt kr. 10 milljarða. Sjóðir sem hafa í hyggju að nýta sér þessa heimild munu þurfa að sækja um og fjárfesta fyrir næstu áramót. Seðlabankastjóri hefur gefið í skyn að þetta sé aðeins fyrsta skrefið og að heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis verði auknar strax á næsta ári, þ.e. ef fram fer sem horfir. Sjá frétt á heimasíðu Seðlabanka Íslands.