Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa nú gefið út fimmtu útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja. Lögð var áhersla á að gera leiðbeiningarnar skýrari og notendavænni. Þá hefur verið bætt úr ýmsum ágöllum í takt við ábendingar frá notendum leiðbeininganna. Leiðbeiningarnar má nálgast hér (PDF).

Samhliða opnaði nýr vefur sem er tileinkaður leiðbeiningunum. Þar má nálgast rafræna útgáfu af leiðbeiningunum, tæmandi lista yfir breytingar frá fyrri útgáfu og ítarefni tengt stjórnarháttum.