Nýr forstjóri Stapa lífeyrissjóðs

Ingi Björnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs.

Ingi tekur við af Kára Arnóri Kárasyni. Ingi hefur mastersgráðu í hagfræði frá Göteborgs Unitversitet og lauk B.Sc. gráðu í hagfræði frá sama skóla. Hann hefur víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði, bæði sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður. Undanfarin ár hefur hann starfað sem útibússtjóri Íslandsbanka á Akureyri.