Nýr framkvæmdastjóri EFÍA

Snædís Ögn Flosadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eftirlaunasjóðs Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Hún tekur við af Jóni L. Árnasyni frá 1. júlí n.k. en hann hefur nú verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Lífsverks. Sjá nánar á heimasíðu sjóðsins (www.efia.is).