Skýrsla FME um lífeyrissjóði

Árleg skýrsla Fjármálaeftirlisins um ársreikninga lífeyrissjóða fyrir árið 2013 er komin út. Af hálfu Landssamtaka lífeyrissjóða er útgáfu skýrslunnar fagnað enda hefur hún að geyma ítarlegar upplýsingar um íslenska lífeyrissjóðakerfið. Hrein raunávöxtun samtryggingdeilda, þ.e. ávöxtun umfram verðbólgu, var 5,6% en hrein raunávöxtun séreignardeilda var 3,5% árið 2013. Heildareignir lífeyrissjóðanna námu rúmlega 2.800 milljörðum króna í árslok 2013 samanborið við um 2.400 milljarða í árslok 2012. Í skýrslunni er farið yfir tryggingafræðilega stöðu sjóðanna.

Sjóðir með ábyrgð ríkis og sveitarfélaga voru með neikvæða stöðu um 595 milljarða króna. Þessir sjóðir eru aðeins að hluta byggðir upp með sjóðsöfnun og hefur hallinn því byggst upp á löngum tíma. Slíkir eftirlaunasjóðir með ábyrgð launagreiðanda eru lokaðir þar sem nýjir starfsmenn greiða í sjóði sem byggja á sjóðsöfnun. Tryggingafræðileg staða sjóða án ábyrðar var með halla upp á 60 milljarða króna í árslok 2013 og eru þeir því að nálgast jafnvægi.

Skýrsluna ásamt glærum frá blaðamannafundi má nálgast á heimasíðu FME