Stór stund á EM2016 í fótbolta

Stór stund á EM2016 í fótbolta

Hún var stór stundin í gær í Saint Étienne í Frakklandi þegar Ísland mætti Portúgal á EM karla í fótbolta 2016. Stundin var líka stór fyrir lífeyrissjóðina því í auglýsingatíma útsendingarinnar var frumsýnd leikin auglýsing sem Dagur Hilmarsson og kvikmyndaframleiðandinn Republik ehf. gerðu fyrir LL. Hér birtist sögubrot af mæðgum (raunverulegum!), í fallegu umhverfi. Móðirin lítur til baka en dóttirin fram á veg og heldur út í lífið. "Lífeyrissjóðurinn þinn" er bakhjarl beggja. Sjón er sögu ríkari!

Áfram Ísland!

https://www.youtube.com/watch?v=nNDfNJ3iJoM&feature=youtu.be

 

S