Tillaga að sameiningu Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs borin upp

Stjórnir Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs boða til auka ársfundar 29. september næstkomandi þar sem upp verður borin tillaga að sameiningu sjóðanna.

Fundurinn, sem haldinn verður á Grand Hóteli fimmtudaginn 29. september og hefst kl. 16.00, verður sendur út í beinni útsendingu.

Allir sjóðfélagar beggja sjóða eru velkomnir.