Opinn fundur um ný lög um stuðning við kaup á fyrstu fasteign

Opinn fundur um ný lög um stuðning við kaup á fyrstu fasteign

Almenni lífeyrissjóðurinn og Viðskiptablaðið héldu opinn fund um ný lög um stuðning við kaup á fyrstu fasteign og önnur atriði sem koma sér vel fyrir ungt fólk sem vill eignast þak yfir höfuðið.

Framsögumenn voru Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins og höfundur bókarinnar Lífið er framundan, Bjarni Ólafsson, ritstjóri Viðskiptablaðsins, og þær Helga Indriðadóttir og Eva Ósk Eggertsdóttir hjá Almenna lífeyrissjóðnum.

Fundarstjóri var Kristófer Már Maronsson, hagfræðinemi við Háskóla Íslands og formaður Stúdentaráðs.

Fundurinn, sem haldinn var þriðjudaginn 22. nóvember 2016, í Bíósal Hótel Natura á Nauthólsvegi var vel sóttur og var hann sýndur í beinni útsendingu á vef Viðskiptablaðsins, www.vb.is.