Lífeyrissjóður góður kostur fyrir húsnæðissparnað

Lífeyrissjóður góður kostur fyrir húsnæðissparnað

Alþingi samþykkti nýverið lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Lögin gera fasteignakaup auðveldari og afborganir léttari fyrir nýja kaupendur á fasteignamarkaði.

Lögin gera einstaklingum kleift að ráðstafa séreignarsparnaði sem safnast hefur upp á tilteknu tímabili til kaupa á fyrstu íbúð.  Þau heimila einnig ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól láns sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð og sem tekið var vegna kaupanna. Séreignarsparnaður sem nýttur er á þennan hátt er skattfrjáls. Heimilt er að nýta hann í 10 ár og er hámarksfjárhæð á ári 500 þús. kr. á einstakling.

Lífeyrissjóðir bjóða séreignarsparnað og eru góður kostur fyrir húsnæðissparnað. Ungir sjóðfélagar sem eru að huga að íbúðakaupum eru hvattir til að snúa sér til síns sjóðs og fá upplýsingar um úrræðið.