Nýr framkvæmdastóri Stapa lífeyrissjóðs

Nýr framkvæmdastóri Stapa lífeyrissjóðs

Jóhann Steinar Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs. Hann tekur við starfinu af Inga Björnssyni sem hefur látið af störfum fyrir sjóðinn.

Jóhann Steinar hefur víðtæka reynslu af innlendum fjármálamarkaði og þekkir vel til starfsemi Stapa frá því á árunum 2012-2016 en þá starfaði hann við eignastýringu hjá sjóðnum. Frá árinu 2016 hefur Jóhann Steinar verið framkvæmdastjóri ÍV sjóða hf.  Á árunum 2008 til 2011 starfaði hann við fjárfestingar og viðskiptaþróun hjá Tryggingamiðstöðinni en þar áður í markaðsviðskiptum, áhættu- og fjárstýringu hjá Stoðum og Straumi fjárfestingabanka.

 Sjá nánar frétt á vefa Stapa lífeyrissjóðs