Ráðstöfun séreignarsparnaðar og fyrsta íbúð - umsóknarfrestur rennur út um áramót

Ráðstöfun séreignarsparnaðar og fyrsta íbúð - umsóknarfrestur rennur út um áramót

Umsóknarfrestur vegna ráðstöfunar séreignarsparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð þegar íbúð var keypt fyrir 1. júlí 2017 rennur út um áramót.

Vakin er athygli á því að þeir sem keyptu fyrsta íbúðarhúsnæði sitt á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2017 og hyggjast nýta sér ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán sitt í allt að 10 ár þurfa að sækja um slíka ráðstöfun í gegnum þjónustusíðu ríkisskattstjóra, www.skattur.is, í síðasta lagi hinn 31. desember 2017.