Fyrirlestur um fjárfestingar lífeyrissjóða

 

 

Á vegum PRICE (Rannsóknarstofnun um lífeyrismál) verður haldinn fyrirlestur 28. apríl kl. 12-13:30, þar sem Jón Guðjónsson, doktorsnemi, heldur erindi um fjárfestingar lífeyrissjóða: Þolinmæði eða skammtímabrask? Hverjir leiða hjarðhegðun á mörkuðum?

PRICE fyrirlestur 28. apríl um fjárfestingar lífeyrissjóða: Jón Guðjónsson er doktorsnemi við hagfræðideild CBS í Kaupmannahöfn. Rannsóknarsvið hans eru þjóðhagsvarúðartæki, fjármálastöðugleiki og fræðileg þjóðhagfræði. Hann hefur einnig starfað við útfærslu þjóðhagsvarúðarstefnu síðan 2017, fyrst hjá Fjármálaeftirlitinu og einnig við fjármálastöðugleikasvið Seðlabanka Íslands. Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins þann 28. apríl frá kl. 12–13.30. Nánar hér