Félag íslenskra tryggingastærðfræðinga býður til opins morgunfundar

Félag íslenskra tryggingastærðfræðinga býður til opins morgunfundar

Félag íslenskra tryggingastærðfræðinga (FÍT) heldur opinn morgunfund föstudaginn 20. nóvember kl. 8:30–10:00 undir yfirskriftinni „Frá lífeyrissparnaði til lífeyrisöryggis“. Þar verður íslenska lífeyriskerfið skoðað í alþjóðlegu samhengi og spurt hvernig megi tryggja nægjanlegan lífeyri til framtíðar. Fundurinn fer fram á ensku.

Gestir frá OECD eru þær Jessica Mosher, tryggingastærðfræðingur og lífeyrissérfræðingur, og Stéphanie Payet, sérfræðingur í Insurance and Pensions Unit. Payet ber ábyrgð á OECD Global Pension Statistics. Hún flytur erindið „Global Pension Trends: Asset Growth and Adequacy of Retirement Savings“.

Að erindinu loknu hefjast pallborðsumræður kl. 9:00 undir heitinu „From Pension Savings to Retirement Security – Is Iceland’s Pension System Fit for the Future?“. Þar taka þær Mosher og Payet þátt ásamt Ólafi Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Birtu, og Ólafi Páli Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Íslenska lífeyrissjóðsins. Þorsteinn Sigurður Sveinsson, forstöðumaður deildar fjármálamarkaða á fjármálastöðugleikasviði Seðlabanka Íslands, stýrir umræðunum.

Fundurinn fer fram í salnum í Borgartúni 19, höfuðstöðvum Arion banka. Húsið opnar kl. 8:00 og fundarslit eru kl. 9:55. Nánari upplýsingar má finna hér.