PRICE (Rannsóknarstofnun um lífeyrismál) stendur að viðburði þar sem Klaus Felix Zimmermann, prófessor, mun halda fyrirlestur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 12. júní kl. 12 til 13:30 um minnkandi frjósemi.
Í kjölfar erindisins mun Vilmundur Torfason, BS nemi í hagfræði, segja frá niðurstöðum rannsóknar á frjósemi á Íslandi.
Frjósemi hefur farið minnkandi í mörgum löndum og er nú áhyggjuefni fremur en vaxandi fólksfjöldi í heiminum sem áður þótti vera vandamál. Því hefur verið spáð að um næstu aldamót muni fólki fara fækkandi í flestum löndum heimsins. Hver er skýringin á þessu?