Ráðstafanir vegna stöðu mála í Grindavík

Ráðstafanir vegna stöðu mála í Grindavík

Ráðstafanir vegna stöðu mála í Grindavík

Mikil óvissa ríkir vegna náttúruhamfara á Reykjanesi. Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða beinir því til sjóðfélaga, sem ekki geta staðið í skilum með afborganir af sjóðfélagalánum vegna tekjufalls, að leita til lífeyrissjóða sinna og fá upplýsingar um þau úrræði sem þeim kunna að standa til boða.

Lífeyrissjóðir hafa áður brugðist við efnahagslegum áföllum með því að aðstoða sjóðfélaga sína á erfiðleikatímum. Nægir að vísa til viðbragða vegna COVID-faraldursins og þar áður efnahagshrunsins.

Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða sendir Grindvíkingum hlýjar kveðjur á erfiðleika- og óvissutímum. Hugur okkar er hjá þeim sem óvænt lentu í umfangsmiklum og skyndilegum erfiðleikum vegna hamfara náttúrunnar.

Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða

15. nóvember 2023