Áhættumat og varnir gegn peningaþvætti

Þrjú lykilmarkmið stjórnvalda: þ.e. að tryggja endurheimt ávinnings, takast á við áhættu tengda reiðufé og bregðast við áskorunum vegna sýndareigna. Heimild: Stjórnarráð Íslands 2025/Dómsmálaráðuneytið.

Lífeyrissjóðir falla undir lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018, þar sem kveðið er á um að þeir séu tilkynningarskyldir aðilar. Af því tilefni hefur skrifstofa fjármálagreininga lögreglu unnið efni sem ætlað er að styðja við áframhaldandi fræðslu og upplýsingagjöf innan sjóðanna.

Skrifstofan stóð jafnframt fyrir fræðslu fyrir lífeyrissjóði árið 2025. Í kjölfarið var kynningarefni sent út og fræðslubæklingi dreift til sjóðanna.

Kynningarefni
Hér fyrir neðan má nálgast kynningar frá skrifstofunni:

Nánari upplýsingar
Vakni spurningar er ávallt hægt að hafa samband við skrifstofu fjármálagreininga lögreglu og heimsækja SFL  þar er að finna m.a. efni úr fræðslufyrirlestrum sem haldnir hafa verið í samstarfi við eftirlitsaðila.