Flugsamgöngur sem grunninnviður í ljósi Covid

Simon Theeuwes
Simon Theeuwes

LL vekja athygli á málþingi sem haldið er á vegum Hagfræðistofnunar og viðskiptafræðideildar HÍ um flugsamgöngur sem grunninnvið í ljósi Covid. 

Simon Theeuwes greinir frá niðurstöðum skýrslu SEO Amsterdam Economics um áhrif sem Covid-19 hefur fyrir flugsamgöngur. Að framsögu lokinni verður efnið rætt út frá aðstæðum hérlendis og í samhengi við hlutverk lífeyrissjóða sem langtímafjárfesta í grunninnviðum hagkerfisins.

 Í pallborðsumræðum taka þátt; Gylfi Magnússon, prófessor og forseti viðskiptafræðideildar, Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálafræðum og Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur Samtaka fjármálafyrirtækja.

 Slóð á fundinn