Raunávöxtun lífeyrissjóða neikvæð á liðnu ári

Eftir afar góða ávöxtun eignasafns lífeyrissjóða undanfarin ár varð viðsnúningur á síðasta ári.  Árið einkenndist af óróleika á alþjóðlegum mörkuðum og aukinni verðbólgu innanlands sem og erlendis. Samkvæmt áætlun Landssamtaka lífeyrissjóða var raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða neikvæð um tæplega 12% árið 2022 og er þar miðað við vegið meðaltal ávöxtunar alls eignasafns sjóðanna að teknu tilliti til verðbólgu. Endanlegar ávöxtunartölur verða birtar þegar ársreikningar sjóðanna fyrir árið 2022 liggja fyrir.

Lífeyrissjóðir eru langtímafjárfestar

Á nýliðnu ári voru miklar sviptingar á eignamörkuðum, meðal annars vegna stríðsástandsins í Úkraínu og orkumála í Evrópu. Innlend verðbólga ársins var 9,6% og gáfu bæði hlutabréfa- og skuldabréfamarkaðir eftir. Lífeyrissjóðir horfa til langtímaávöxtunar við fjárfestingar enda eru skuldbindingar þeirra til langs tíma.

Þrátt fyrir neikvæða ávöxtun ársins 2022 er 10 ára meðalraunávöxtun sjóðanna um 4,6% og 5 ára um 4,0% sem er vel umfram 3,5% ávöxtunarviðmið skuldbindinga.

Lífslíkur hækka til framtíðar

Í lok ársins 2021 staðfesti fjármála- og efnahagsráðuneytið tillögur Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga um nýjan reiknigrunn fyrir lífslíkur. Þar er gert ráð fyrir að meðalaldur haldi áfram að hækka næstu ár og er sú nálgun nýnæmi hér á landi. Sjóðunum var veittur tveggja ára innleiðingartími og hafa margir lífeyrissjóðir þegar aðlagað réttindi sinna sjóðfélaga að breyttum forsendum en aðrir eru enn að vinna að málinu í samráði við tryggingastærðfræðinga sjóðanna.