Fjárfestingar lífeyrissjóða og áhrif lífeyrisauðs á vinnumarkað

Fyrirlestrar um fjárfestingar lífeyrissjóða og um áhrif lífeyrisauðs á vinnumarkaðsþátttöku.

PRICE (Rannsóknarstofnun um lífeyrismál) stendur fyrir tveimur fyrirlestrum í apríl og maí. Sá fyrri fjallar um fjárfestingar lífeyrissjóða og sá síðari um áhrif lífeyrisauðs á vinnumarkaðsþátttöku.

PRICE fyrirlestur 28. apríl kl. 12-13:30 um fjárfestingar lífeyrissjóða: Jón Guðjónsson, doktorsnemi við hagfræðideild Viðskiptaháskólans í Kaupmannahöfn (CBS), heldur fyrirlestur um fjárfestingar lífeyrissjóða – Þolinmæði eða skammtímabrask? Hverjir leiða hjarðhegðun á mörkuðum? Nánar hér 

PRICE fyrirlestur 28. maí kl. 12-13:30 um áhrif lífeyrisauðs á vinnumarkaðsþátttöku: Anne Katrine Borgbjerg, doktorsnemi í hagfræði við háskólann í Árósum, heldur fyrirlestur um áhrif lífeyrisauðs á vinnumarkaðsþátttöku – Lífeyrisréttindi og eftirlaunaaldur.  Nánar hér