Fræðslumyndbönd um lífeyrismál aðgengileg á Youtube

Fræðslumyndbönd um lífeyrismál aðgengileg á Youtube

Landssamtök lífeyrissjóða hafa í vetur staðið fyrir gerð nokkurra fræðslumyndbanda sem öll eru aðgengileg á Youtube-rás samtakanna

Þetta eru stutt myndbönd (innan við 1 mín) sem henta vel til fræðslu um lífeyriskerfið á samfélagsmiðlum. Notkun í fræðsluskyni er öllum heimil.

Efni myndbandanna: 

  1. Af hverju þarf ég að greiða í lífeyrissjóð?
  2. Hvar finn ég upplýsingar um réttindi mín hjá lífeyrissjóðum?
  3. Hvaða réttindi fæ ég með því að greiða í lífeyrissjóð?
  4. Viðbótarlífeyrissparnaður
  5. Hversu mikið greiða sjálfstætt starfandi í lífeyrissjóð?
  6. Hvernig vel ég mér lífeyrissjóð?

Myndbandið "Lífeyrissjóðakerfið á 90 sek" er einnig aðgengilegt á Youtube og nú á þremur tungumálum: íslensku, ensku og pólsku. Myndbandið hentar vel til kennslu í yngri aldurshópunum og er meðal annars notað til kennslu í framhaldsskólum. Það hentar einnig vel sem fræðsluefni fyrir útlendinga sem hér starfa til lengri eða skemmri tíma. Notkun í fræðsluskyni er öllum heimil.

Frétt um "Lífeyrissjóðakerfið á 90 sek"