Fyrsti fundur samráðshóps um lífeyrismál

Fyrsti fundur samráðshóps um lífeyrismál

Fyrsti fundur samráðshóps um lífeyrismál

4. desember var boðað til fyrsta fundar samráðshóps ASÍ og SA um lífeyrismál í Húsi atvinnulífsins.

Skipun hópsins er hluti af samkomulagi aðila um breytingar á kjarasamningi, stjórnkerfi lífeyrissjóða frá 24. apríl sl. 

Samráðshópinn mynda stjórnarmenn og framkvæmdastjórar þeirra sjö lífeyrissjóða sem falla undir samningssvið ASÍ-SA auk fulltrúa frá ASÍ og SA.

Frummælendur voru Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ, sem fjallaði um meginefni breytinga á stjórnkerfiskafla lífeyrissjóða á samningssviði ASÍ-SA, Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, en erindi hans fjallaði um breytingar á lögum um almannatryggingar og upptöku starfsgetumats, stöðu viðræðna og nefndarstarf. Síðan flutti Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, erindi sem fjallaði um framtíð íslenska lífeyriskerfisins og að lokum Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, sem fjallaði um hugmyndafræði Alþjóðabankans við endurskoðun lífeyriskerfa.

Gert er ráð fyrir að samráðshópurinn hittist að jafnaði tvisvar á ári.