Hálfur ellilífeyrir - hádegisfræðsla

Hálfur ellilífeyrir - hádegisfræðsla

Hádegisfræðsla um hálfan lífeyri verður 23. febrúar kl. 12.00 í Guðrúnartúni 1, 4.hæð

Á þessum fræðslufundi gefst tækifæri til að hlýða á þau Sigurjón Skúlason og Unni Sigurgeirsdóttir verkefnastjóra hjá Tryggingastofnun útskýra hver skilyrði fyrir hálfum lífeyri eru og fyrir hverja þessi valmöguleiki gæti hentað. 

Heimild til greiðslu hálfs ellilífeyris tók gildi í byrjun árs 2018. Lagabreytingin var liður í því að auka sveigjanleika við starfslok.  Lífeyrissjóðir breyttu samþykktum sínum í  kjölfar breytinganna til þess að gera sjóðfélögum kleift að nýta þennan möguleika. 

Umsækjandi um hálfan ellilífeyri nýtur sama réttar til annarra greiðslna og aðrir ellilífeyrisþegar. Þannig getur umsækjandi átt rétt á hálfri heimilisuppbót. Auk þess getur hann átt rétt á barnalífeyri, uppbót vegna reksturs bifreiðar eða öðrum uppbótum ef hann uppfyllir skilyrði þeirra greiðslna.

Skráning í hádegisfræðslu 

Hádegishressing fyrir þá sem mæta á staðinn.