Ársfundur PRICE 2026

Ársfundur PRICE 2026

Ársfundur PRICE verður haldinn í Norræna húsinu 4. desember kl. 12:00 - 15:30. Á fundinum verða flutt tvö erindi, annars vegar um umbætur á lífeyriskerfum og hins vegar hlutverk lífeyrissjóða á markaði fyrir húsnæðislán.

Gestafyrirlesarar eru hagfræðingarnir Ward Romp frá Háskólanum í Amsterdam og Torben M. Andersen frá Háskólanum í Árósum. Romp mun fjalla um þróun lífeyriskerfa með hliðsjón af lýðfræðilegum breytingum og hagsveiflum, en rannsóknir hans hafa einkum beinst að áhrifum öldrunar samfélaga og dreifingu áhættu milli kynslóða. Torben Andersen mun kynna fyrirkomulag á húnsnæðislánamarkaði í Danmörku. 

Fundinum lýkur með pallborðsumræðum um þátttöku lífeyrissjóða á íslenskum húsnæðislánamarkaði. Iða Brá Benediktsdóttir frá Arion banka, Jónas Atli Gunnarsson frá HMS, Lúðvík Elíasson frá Seðlabanka Íslands, og Rebekka Ólafsdóttir frá Gildi sitja í pallborði. Umræðunum stýrir Jón Guðjónsson frá Copenhagen Business School. 

Dagskrá fundarins má finna hér.