„Meirihluti eigna lífeyrissjóða ætti að vera erlendis“.

„Meirihluti eigna lífeyrissjóða ætti að vera erlendis“.

„Meirihluti eigna lífeyrissjóða ætti að vera erlendis“

„Verðum við ekki að dreifa áhættunni? Hér hafa menn sett ákveðið „þak“ á það að lífeyrissjóðir mega fjárfesta erlendis en við eigum að horfa á þetta úr hinni áttinni. Það er alltof mikil áhætta að vera með þetta allt í einu landi, við eigum að dreifa áhættunni meira og setja „þak“á hvað megi vera hér innanlands,“ sagði Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, á almennum fundi Landssamtaka lífeyrissjóða á Grandhóteli í morgun. Umræðuefnið var nýbirt greinargerð um samanburð á lífeyriskerfum á Íslandi og í fjórum öðrum Evrópuríkjum.

„ Sumum finnst lífeyrissjóðakerfið orðið af stórt nú þegar. Við heyrum nánast daglega hve fyrirferðarmiklir lífeyrissjóðir séu, til dæmis sem eigendur í fyrirtækjum. Svo kvarta menn líka yfir því að lífeyrissjóðir vilji ekki fjárfesta í hinum og þessum fyrirtækjum; væntanlega verður alltaf kvartað, sama hvað menn gera!“ sagði ráðherrann ennfremur.

„Hvað eiga lífeyrissjóðir að eiga mikið undir fyrirtækjum og hvað eiga þeir að eiga mikið undir Íslandi? Hvaða vit er í því að vera með svona stórt kerfi allt á einum, íslenskum markaði?

Auðvitað hefur þetta verið erfitt af því hér eru höft en vonandi hverfa þau fljótlega. Óvenjulegt vandamál er að hér streymir inn meira af gjaldeyri en streymir út. Lífeyrissjóðir halda að sér höndum við fjárfestingar vegna þess að þeir halda að krónan haldi áfram að styrkjast. Ekki veit ég hvort hún styrkist meira eða veikist en ég veit að hún er ekki traustur vinur. Enginn vafi er á því að til lengri tíma litið og til skemmri tíma litið ættu lífeyrissjóðir að færa fjárfestingar sínar úr landi og gæta þess að meirihluti þeirra sé erlendis.“

 

Þétt setinn fundarsalur

Fjöldi fólks sótti morgunverðarfundinn þar sem Stefán Halldórsson verkefnisstjóri gerði grein fyrir helstu niðurstöðum samanburðar lífeyriskerfa í fimm ríkjum.

Kynning Stefáns var yfirgripsmikil og leiddi margt áhugavert í ljós. Íslenska lífeyriskerfið kemur vel út í samanburði við kerfin í Bretlandi, Danmörku, Hollandi og Svíþjóð en sker sig samt að ýmsu leyti úr. 

  • Hlutfallslega fleiri og fleiri Íslendingar fá eftirlaun úr lífeyrissjóðum en engan lífeyri úr opinbera kerfinu. Ísland er eina OECD-landið þar sem stærstur hluti eftirlauna kemur úr lífeyrissjóðum. 
  • Tekjutenging er mest á Íslandi og lífeyrishlutfall lækkar mun hraðar með auknum tekjum en í kerfum hinna landanna. Tekjutengingin hefur að hluta aukist við breytingar á almannatryggingum 1. janúar 2017. Íslendingar leggja áherslu á að beina opinberum lífeyrisgreiðslum einkum að þeim verst settu og láglaunafólki. Þess vegna fá þeir sem eiga góð réttindi í lífeyrissjóðum, eða hafa umtalsverðar aðrar tekjur, lítið eða ekkert úr opinbera kerfinu. 
  • Lífeyrishlutfall lækkar með auknum tekjum í fjórum ríkjum. Í Svíþjóð skila hærri tekjur hins vegar hærra lífeyrishlutfalli, bæði fyrir og eftir skatta. 
  • Í Danmörku og Hollandi bera þeir lægst launuðu meira úr býtum eftir að þeir komast á eftirlaun en þeir gerðu á starfsævinni. Í Svíþjóð bera þeir lægst launuðu hins vegar minna úr býtum en þeir gerðu á starfsævinni. 
  • Heildarmyndin er sú að hollenska kerfið skilar hæstu lífeyrishlutfalli og þar eru sveiflar minnstar eftir tekjum. Íslenska kerfið kemur næst á eftir. 
  • Ráðstöfunartekjur eldri borgara á Íslandi komast næst því að jafnast á við ráðstöfunartekjur landsmanna allra Lífeyrir frá hinu opinbera er heldur hærri í Danmörku en á Íslandi en tekjur úr lífeyrissjóðum og aðrar tekjur vega það upp og meira til hérlendis. Hafa ber í huga að hlutfallslega mun fleiri eldri borgarar á Íslandi (66 ára og eldri) hafa tekjur af atvinnu en í öðrum samanburðarríkjum og eru ekki komnir á eftirlaun. 
  • Íslendingar fara að jafnaði á eftirlaun einu til tveimur árum eftir að opinberum lífeyristökualdri er náð en í öðrum samanburðarríkjum fer fólk hins vegar að jafnaði á eftirlaun nokkru áður en aldursmörkum er náð. Íslendingar eru á eftirlaunum að jafnaði mun skemur í árum talið en tíðkast í hinum ríkjunum. 
  • Aldursdreifing og mikil atvinnuþátttaka eiga stærstan þátt í að íslenska lífeyriskerfið kemur vel út í alþjóðlegum samanburði þrátt fyrir að hér séu greidd lægri iðgjöld en víðast hvar annars staðar.

Stefán Halldórsson nefndi í lok erindis síns að tvö erlend rannsóknarteymi birti árlega skýrslur og beri saman lífeyriskerfi í tugum ríkja. Hvorugt teymið hefur Ísland með í hópnum en af umfjöllun um styrkleika og veikleika kvað hann mega ráða að Ísland stæði framarlega í samanburðinum ef sömu mælikvörðum væri beitt á lífeyriskerfið hér.

Þannig yrði íslenska kerfið í „topp tíu“ af alls 27 ríkjum í samanburði teymis á vegum eignastýringardeildar Allianz og í „topp tíu“ af 54 ríkjum hjá hinu teyminu, í rannsóknarsetri Mercer ráðgjafafyrirtækisins og Monash viðskiptaháskólans í Melbourne.

 Tenging á greinargerðina