Sveinn Þráinn Guðmundsson er fyrsti nemandinn sem lýkur grunnnámi í tryggingastærðfræði við HÍ. Hann brautskráðist frá HÍ þann 13. júní s.l. með B.S. próf í hagnýtri stærðfræði með sérhæfingu í tryggingastærðfræði. Sveinn hefur einnig B.S. próf í fjármálaverkfræði frá HR sem hann lauk vorið 2023. Sveinn mun hefja M.Sc. nám í tryggingastærðfræði við Stockholm University í ágúst n.k. Í dag eru 7 nemendur skráðir í tryggingastærðfræði við HÍ.
Grunnám í tryggingastærðfræði hefur verið í boði hjá HÍ frá haustmisseri 2024 undir hagnýtri stærðfræði. Námið var sett á laggirnar samhliða opnun Rannsóknastofnun lífeyrismála við HÍ (e. Pension Research Institute Iceland - PRICE). Landssamtök lífeyrissjóða, Háskóli Íslands, Seðlabankinn og fjármála- og efnahagsráðuneytinu standa að stofnuninni.