Jákvæð raunávöxtun lífeyrissjóða árið 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum
Landssamtök lífeyrissjóða hafa birt áætlaða niðurstöðu um ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða fyrir árið 2025. Samkvæmt bráðabirgðatölum var raunávöxtun bæði í samtryggingu og séreign jákvæð um 2,6% á árinu. Áætlunin byggir á vegnu meðaltali alls eignasafns íslenskra lífeyrissjóða. Endanlegar tölur verða birtar þegar ársreikningar sjóðanna liggja fyrir síðar á árinu.
Langtímaárangur áfram góður
Lífeyrissjóðir leggja áherslu á langtímaávöxtun í fjárfestingum sínum þar sem skuldbindingar þeirra eru til langs tíma. Meðalraunávöxtun síðustu tíu ára er um 4,0% og síðustu fimm ára um 2,8%. Þessar tölur endurspegla stöðugan árangur þrátt fyrir sveiflur á einstökum árum.
Upplýsingar aðgengilegar á Lífeyrismál.is
Á vefnum Lífeyrismál.is undir Tölur og gögn má finna ítarlegar upplýsingar um íslenska lífeyrissjóðakerfið, þar á meðal samanburð við önnur lönd og þróun ávöxtunar til lengri tíma.