Kynning á réttindakerfi Stapa

Kynning á réttindakerfi Stapa

Stapi kynnir réttindakerfi sjóðsins

Jóna Finndís Jónsdóttir, forstöðumaður réttindamála hjá Stapa lífeyrissjóði, kynnti nýverið á Grandhóteli réttindakerfi sjóðsins en það var tekið í notkun árið 2016. Fundinn sóttu starfsfólk og stjórnarmenn lífeyrissjóða.

Kerfið byggir á því að lífeyrisréttindi breytast mánaðarlega í samræmi við inngreidd iðgjöld og ávöxtun eigna sjóðsins. Jóna Finndís fjallaði um réttindakerfið og ávinnslu réttinda í því, útreikning á eignavísitölu, vinnulag við úrskurði og flutning réttinda úr eldra kerfi yfir í hið nýja.

Í máli Jónu Finndísar kom meðal annars fram að mikið væri lagt upp úr gagnsæi, þ.e. að sjóðfélagar sjái á sjóðfélagayfirlitum kostnað við tryggingavernd og geti fylgst með þróun réttindasjóðs til eftirlauna. Einn helsti kostur réttindakerfisins væri sá að einfalt er að útskýra fyrir sjóðfélögum hvernig lífeyrissjóðurinn virkar og hefur það skapað jákvæða umræðu um lífeyrissjóðinn.

Glærur Jónu Finndísar eru aðgengilegar hér