Sjóðfélagalán

Flestir lífeyrissjóðir veita sjóðfélagalán gegn veði í fasteign.

Á vefsíðum lífeyrissjóðanna eru lánareiknivélar sem geta nýst vel og ráðgjafar

hjá lífeyrissjóðnum þínum eru tilbúnir til að aðstoða þig.

 

  • Er hægt að nýta viðbótarlífeyrissparnað til að greiða niður sjóðfélagalán?

    Lagafrumvarp er í undirbúningi um áframhaldandi ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. Heimild til að ráðstafa séreignarsparnaði inn á lán vegna íbúðakaupa var í gildi til loka árs 2025.

    Við kaup á fyrstu íbúð geta einstaklingar notað viðbótarlífeyrissparnað til að greiða inn á húsnæðislán eða nýtt það sem útborgun. Þeir geta einnig farið blandaða leið.

    Hámarksfjárhæð á hvern einstakling á ári er 500 þúsund.

    Heimilt er að nýta viðbótarlífeyrissparnað við kaup á fyrstu íbúð í samfleytt 10 ár.

    Nánari upplýsingar hér: Nýting séreignasparnaður

  • Er hægt að fá lán hjá lífeyrissjóðum?

    Flestir lífeyrissjóðir veita lán til sjóðfélaga gegn fasteignaveði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Kjör á lánum til sjóðfélaga eru yfirleitt vel samkeppnishæf og því eru sjóðfélagalánin góður kostur fyrir þá sem þurfa lán til lengri tíma, t.d. til að að kaupa fasteign.